top of page

David Bowie

IN MEMORIAM - Eldborg Hörpu 29. apríl 2016

Rás2: "Ótrúlega, ótrúlega, ótrúlega, ótrúlega, ótrúlega gott. Mér fannst þarna slá nýjan tón í tribiute-tónleikum"

Söngvarar:

HÖGNI EGILSSON

GLOWIE

STEFÁN JAKOBSSON

PÉTUR BEN 

ANDREA GYLFADÓTTIR

SIGURÐUR GUÐMUNDSSON

ÞÓR BREIÐFJÖRÐ

UNNUR BIRNA BASSADÓTTIR

VALDIMAR GUÐMUNDSSON

KARL ÖRVARSSON

BJÖRGVIN HALLDÓRSSON

Bandið VG.jpg

Hljómsveit:

Karl Olgeirsson, hljómborð, raddir, hljómsveitastjórn

Tómas Tómasson gítar, raddir 
Jón Elvar Hafsteinsson gítar

Ingi Björn Ingason bassi

Ingólfur Sigurðsson trommur, raddir 
Jóhann Ingvason hljómborð, raddir

Emil Guðmundsson ásláttur

Sigurður Flosason saxafónn, ásláttur
Karl Örvarsson saxafónn, raddir

Unnur Birna Bassadóttir fiðla, raddir

Matthías Stefánsson fiðla, gítar.

Úr fréttatilkynningu:

Meistara Bowie verður minnst á tónleikum í Hörpu 29. apríl nk.

Í kjölfar óvænts fráfalls eins mesta snillings tónlistarsögunnar er það með lotningu sem hér með tilkynnist að blásið verður til minningatónleika í Eldborgarsal Hörpu föstudagskvöldið 29. apríl 2016.

Á tónleikunum mun verða leitast við að heiðra minningu Bowie á tignarlegan og heiðvirðan hátt þannig að tónlist hans megi njóta sín sem best í hópi 

okkar fremstu flytjenda. 

Fjársjóðir Bowie í lagasmíðum eru endalausir og fjölbreytnin ótrúleg. Öll þau tímabil og blæbrigði sem ferill hans spannar munu skapa ógleymanlega stemmingu þetta kvöld í Hörpu. Við syrgjum meistara Bowie og fögnum við því að tónlist hans mun lifa og það telst til forréttinda að fá þann heiður að geta boðið landsmönnum að njóta kvöldstundar með okkur í Hörpu föstudaginn 29. apríl.

Góða skemmtun!

Símaupptökur:

Rás 2 tónleikaumsögn:

Ljósmyndir: dv.is

bottom of page