Það hefur löngum verið sagt að í Skagafirðinum renni söngvatn úr hverjum læk og hverjum krana. Í gegnum tíðina hefur þaðan komið mikið magn af tónlist af öllum stærðum, gerðum og stílum og er hljómsveitin VON með ofurbarkann Ellert Jóhannsson við hljóðnemann þar engin undantekning.
Sveitin var stofnuð í desember árið 2001 og hefur leikið um allt land og sér í lagi sinnt landsbyggðinni af alúð auk þess bregða þeir drengir undir sig betri fætinum á tyllidögum og trylla mannskapinn á SPOT í Kópavogi.
Von gaf út diskinn ÞÚ GAFST MÉR LÍF árið 2004 og Í BÍTIÐ árið 2008. Á báðum diskunum er að finna frumsamin lög og einnig cover lagið Gaggó Vest.
Von skipa:
Ellert H Jóhannsson söngur
Sigurpáll Aðalsteinsson hljómborð
Gunnar Illugi Sigurðsson trommur
Guðni Bragason bassi
Sorin Lasar gítar.
|