Hljómsveitin Upplyfting tekur að sér að spila fyrir dansi á dansleikjum og skemmtunum bæði á almennum skemmtistöðum og einkasamkvæmum hvers konar , t.d. árshátíðum, þorrablótum, afmælum, brúðkaupum og hvers kyns samkomum þar sem fólk vill koma saman, dansa og skemmta sér hvar sem er á landinu.
Grunnurinn að hljómsveitinni samanstendur af tríóinu, Kristjáni Birni Snorrasyni, harmoníku og söng, Sigurði Dagbjartssyni, gítar og söng og Má Elísyni, trommum og söng. Auk þess starfa með hljómsveitinni þeir Magnús Stefánsson, bassi og söngur og Kristján Óskarsson, hljómborð sem báðir hafa lagt stóra skerfi í plötuútgáfur hljómsveitarinnar
Hljómsveitin getur því boðið upp á að koma fram sem 3ja manna, 4ja manna og 5 manna hljómsveit allt eftir stærð og eðli dansleiks og óskum dansleikjahaldara.
29. júní 2010 eru 30 ár liðin frá því Upplyfting sendi frá sér sína fyrstu plötu með Traustum vini og Kveðjustund.
Hljómsveitin áformar að minnast þeirra tímamóta með afmælisútgáfu bæði með gömlum og nýjum lögum.
|