Umsvif er 4 manna hljómsveit sem hefur starfað með hléum síðan 2004.
Hljómsveitin hefur verið þekkt fyrir fjöruga dansleiki og 80's kvöld.
Hljómsveitin hefur í gegnum tíðina spilað á ótal böllum og tekur að sér að spila á árshátíðum, þorrablótum, jólaböllum, afmælum, fermingum eða við hvaða tilefni sem er, hvar sem er!
Áherslur
það sem meðlimir hljómsveitarinnar hafa í fyrirrúmi þegar þau koma fram á balli er einkum þetta:
- Ná tengslum við áhorfendur (þar sem það á við)
- Mikil keyrsla á dansvænni tónlist - aldrei stoppað
- Fjölbreytt og skemmtilegt lagaval
- Mikið af íslenskri tónlist
- Húmor og góð skemmtun
- Stuttar pásur og spilað eins lengi og hægt er
Lagaval
Umsvif hefur einkum einbeitt sér að tónlist frá 1970-2000 en eitt og eitt eldra og nýrra lag hefur fengið að fljóta með.
Lagalistinn samanstendur af mjög fjölbreyttri flóru tónlistarfólks og má þar nefna t.d. Bubba Morthens, Mannakorn, Grílurnar, Stuðmenn, Elvis, Bítlana, Stones, Robbie Williams, Duran Duran ofl. ofl.
|