Touch er skemmtileg popp/rokk grúppa sem hefur spilað none stop um hverja helgi víðsvegar um land síðastliðin tvö ár. Hljómsveitin hefur m.a. hitað upp fyrir hina heimsfrægu Bloodhound Gang fyrir fullu húsi í Laugardalshöll, haldið nokkra tónleika í New York ofl.
Auk þess að hafa troðið upp á flestum skemmtistöðum landsins, hefur hljómsveitin leikið á ófáum, árshátíðum, þorrablótum, brúðkaupum, skilnuðum og öðrum jarðaförum.
Touch vinnur að sinni fyrstu breiðskífu og hefur lokið upptökum á henni. Þegar hafa komið út lögin Justify, Face it og Fucking hypocrites sem öll hafa fengið góða útvarpsspilun.
Meðlimir Touch:
Böddi - söngur og gítar
Einsi - bassi og bakraddir
Danni - gítar
Kópur - trommur
Dvergurinn - rótari
|