Páskatúr SKRIÐJÖKLA 2010
Framunda er stuttur Páskatúr um norðan- og austanvert landið, fyrsti viðkomustaður Allin Siglufirði á Föstudaginn langa, tónleikar á Græna hattinum Akureyri laugardaginn 3. apríl og Egilsbúð Neskaupstað á páskadag 4. apríl.
Hinir ómótstæðilegu SKRIÐJÖKLAR hafa komið fram annað veifið að undanförnu en þá einungis við „mjög“ hátíðleg tækifæri.
20. mars var leikið fyrir troðfullu húsi á Akureyraballi á SPOT og ekki var að sökum að spyrja, þakið ætlaði gjörsamlega af kofanum þegar okkar menn stigu á svið. Fleiri mætir norðanmenn tóku þátt í gleðinni bítlahljómsveitin BRAVÓ, HUNANG, Dægurlagapönkhljómsveitin HÚFA að ógleymdum Rögnvaldi Gáfaða
23. jánúar var leikið á svokölluðum „Viðhafnatónleikum“ á Græna hattinum á Akureyri, uppselt var að sjálfsögðu og fóru JÖKLARNIR hreinlega á kostum eins og við var að búast. Framlína sveitarinnar svipti sig ofanverðum klæðum undir lokin og höfðu menn á orði að aldrei hefðu sést jafn margir ljósmyndarar við sviðið á þeim Græna.
7. nóv. 2009 var fagnað 28. ára söngafmæli forsöngvarans Ragnars Sót fyrir fullu húsi á SPOT (sjá nánar fréttatilkynningu hér neðar)
Fréttatilkynning
28 ára söngafmæli Ragga Sót
Laugardagskvöldið 7. nóvember verður mikið um dýrðir á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi en þá fagnar hljómsveitin Skriðjöklar 28 ára söngafmæli forsöngvarans og hljómsveitarstjórans Ragga Sót. Verður haldið upp á þau tímamót með sannkölluðum stórdansleik þar sem ýmsir góðir gestir troða upp ásamt Skriðjöklunum.
Ragnar hóf ferilinn sem trommuleikari og söngvari árið 1981 með tríóinu Straumum á Akureyri. Tveimur árum síðar stofnaði hann síðan Skriðjökla en á þessum 28 ára ferli hefur hann einnig starfað með sveitum á borð við Bölvar og Ragnar, Alveg svarta og Víxla í vanskilum.
Á Spot á laugardagskvöldið munu margir merkir samferðamenn listamannsins troða upp honum til heiðurs en í þeim hópi eru sumir af helstu undirleikurum landsins.
Hver er Raggi Sót?
Ragnar Gunnarsson hefur um árabil verið ein helsta skrautfjöður íslenska poppheimsins sem söngvari Skriðjökla og alhliða lífskúnstner. Hann fæddist á Akureyri á síðustu öld og hefur ekki verið nokkur friður fyrir honum síðan.
Ragnar var að eigin sögn svo heppinn að kynnast áfenginu snemma og hafa þau kynni styrkst með hverju árinu. Hefur hann hvarvetna vakið aðdáun fyrir örugg tök á drykkjunni og heldur því gjarnan sjálfur fram að hann sé einn farsælasti drykkjumaður landsins. Fleira hefur hann unnið sér til frægðar og ber þar einna hæst íþróttaafrek af ýmsu tagi. Barnungur sýndi hann snilldartilþrif á billjardstofu föður síns og sómdi sér þar vel innan um helstu slarkara bæjarins. Knattspyrnu stundaði hann líka með ógleymanlegum hætti, var þá lengst af markvörður og vakti hrifningu margra fyrir reykingar milli stanganna. Þá lék hann við góðan orðstír með handknattleiksliði KA, mest í vörn, og þótti bæði grófur og dónalegur.
En óneitanlega er það hin listræna taug sem helst litar líf og störf Ragga Sót. Ungur vakti hann athygli fyrir nýstárlega frammistöðu við blokkflautuleik en lagði flautuna á hilluna af ótta við að verða eins og Andrés Önd í framan. Tók þá við trommuleikur með tríóinu Straumum, hans fyrstu hljómsveit. Seinna stofnaði Ragnar svo hina illræmdu hljómsveit Skriðjökla sem varð í fyrstu kunn fyrir svindl og síðar landsfræg fyrir drykkjuskap. Aðrar helstu sveitir sem hann hefur starfað með eru Bölvar og Ragnar, Alveg svartir og Víxlar í vanskilum.
Hér gefst ekki rúm til að fjalla að neinu marki um viðburðaríkan feril þessa sérstæða listamanns sem vekur athygli og umtal hvar sem hann kemur. Ástæðurnar fyrir því eru sjálfsagt margar og ólíkar en líklegt má telja að þær helstu séu nefið, kvenhyllin og hinn fínlegi sjarmi sem einkennir allt hans fas. Nú stendur yfir ritun æviminninga hans og ber fyrsta bindið vinnuheitið „listamaður lítur um öxl: Maður er uppnefndur“.
Þeir sem vilja kynnast Ragga Sót og list hans betur eru eindregið hvattir til að skella sér á skemmtistaðinn Spot í Kópavogi laugardagskvöldið 7. nóvember þar sem fjöldi valinkunnra listamanna og undirleikara lætur til sín taka honum til heiðurs, bæði á sviðinu og barnum.
|