Heim promo@promo.is
Böndin PROMO Atburđir Sendu fyrirspurn Póstlistinn
Skítamórall    
* Austfirđingaball ...
Á móti sól
Austurlandiđ
Bardukha
Bermuda
Björgvin Halldórsso...
BoogieNights
Dalton
Danshljómsveit Friđ...
Dísel
DJ Kiddi Bigfoot
DJ Siggi Hlö
Dúkkulísur
Eins og hinir
Fimm á Richter
Geirfuglarnir
Geirmundur
Greifarnir
Helgi Björns
Hrafnar
Hunang
Hvar er Mjallhvít?
Í svörtum fötum
Ímynd
Ína og Hljómsveit
Ingó & Veđurguđirni...
Íslenzka sveitin
Jet black Joe
Karma
Klaufar
Kóngulóarbandiđ
Land og synir
Logar
Lúdó og Stefán
M-blues project
Mannakorn
Matti Idol og Draug...
Milljónamćringarnir
Mono
Napoleon
Nýdönsk
Óđs Manns Ćđi
Rokkabillýband Reyk...
Sagaklass
Sálin
Sambandiđ
Síđasti sjens
Silfur
Sixties
Skítamórall
Skriđjöklar
Sniglabandiđ
Sólon
Spútnik
SSSól
Stuđmenn
Súellen
Tilţrif
Touch
Úlfarnir
Umsvif
Upplyfting
Vinir Vors & blóma
Von
Ţursaflokkurinn
  
Ţađ ţarf varla ađ fara mörgum orđum um hljómsveitina Skítamórall eđa Skímó eins og hún er kölluđ í daglegu tali. Sveitin hefur veriđ eins sú alvinsćlasta í seinni tíđ og hafa ţeir félagar veriđ iđnir viđ kolan og gefiđ út hvern smellin á fćtur öđrum og nćgir ađ nefna lög eins og FARINN, NÁKVĆMLEGA, FLJÚGUM ÁFRAM, ŢÚ VEIST HVAĐ ÉG MEINA MĆR, ĆĐI, STÚLKAN MÍN, SKJÓTTU MIG svo eitthvađ sé nefnt.


Sagan.

Hljómsveitin Skítamórall var stofnuđ á Selfossi áriđ 1989. Fjórir 14 ára guttar, Arngrímur Fannar Haraldsson, Gunnar Ólason, Herbert Viđarsson og Jóhann Bachman. Fyrsta ćfingahúsnćđiđ var í kjallara gagnfrćđaskólans á Selfossi og međ brennandi tónlistaráhuga voru fyrstu skrefin stigin fyrir tćpum 17 árum. Fyrstu verk á efniskrá sveitarinnar voru eftir gömlu meistarana í Zeppelin, Deep Purple og Uriha Heep en fleiri síđhćrđar rokksveitir höfđu áhrif á strákana. Nafn sveitarinnar var strax ákveđiđ á ţessum tíma. Ţađ var Einar Bárđar, bróđir Arngríms, sem lagđi ţađ til. Nafniđ hafđi hann hugsađ sem nafn á .heavy metal. bandi sem hann ćtlađi ađ stofna í gríni. Litli bróđir var ađ leita ađ nafni á hljómsveit sína á sama tíma. Einar sá efniskrá bandsins hjá litla bróđur og stakk hann upp á ađ ţeir fengju nafniđ. Á nćstu árum kom hljómsveitin fram á nokkrum tónleikum og skemmtunum á Selfossi og í nćsta nágrenni.

Ţrátt fyrir mikinn ungćđingshátt var öllum sem nálćgt ţeim stóđu ţá ljóst ađ hljómsveitin bjó yfir miklu meiru en ţćr sveitir sem stóđu jafnfćtis henni í aldri og reynslu. Frćndurnir Gunnar og Herbert eru af stórri ćtt mikilla tónlistar- og söngfólks.
Jóhann Bachman er sonur Óla Bach sem var trommari í Logum, Mána og fleiri sveitum. En fleiri komu ađ bandinu á ţessum tíma. Sigurđur Óli Kristinson tók viđ hljóđnemanum í eitt ár á međan Gunnar tók út fullan söngţroska. Kristján Eldjárn Ţóroddsson jafnaldri, vinur og nágranni frá Selfossi tók ađ sér hljómborđsleik fyrir sveitina um tíma. Báđir settu ţeir svip sinn á bandiđ og ţetta voru skemmtilegir tímar fyrir ţá stráka og áhorfendur. Áriđ 1992 tók Skítamórall svo ţátt í Músíktilraunum í Tónabć.
Sveitin komst í úrslit en lét í minni pokkann fyrir dömunum í Kolrössu krókríđandi frá bítlabćnum Keflavík. Ţar međ lauk fyrsta kaflanum í sögu hljómsveitarinnar. Bandiđ tók eins árs frí og Arngrímur og Herbert lögđu land undir fót og skođuđu heiminn í eitt ár.

Skítamórall fór svo ekki aftur í gang fyrr en í október 1994. Vegna fjölda áskorana spiluđu ţeir um jólin og áramótin 1994 og 1995. Á ţessum tíma tóku ţeir upp sitt fyrsta lag. Lagiđ var Tannpínupúkinn, lag Grýlunnar og Stuđmannsins Ragnhildar Gísladóttur viđ texta Andrésar Indriđasonar, andlegs föđur ţeirra Gláms og Skráms sem sungiđ höfđu lagiđ upprunalega á plötunni Sćlgćtislandiđ. Lagiđ segir allt sem segja ţarf um stemmninguna í bandinu á ţessum tíma. Léttleiki og spenna yfir ţví sem beiđ viđ sjóndeildarhringinn. Karl Ţór Ţorvaldsson hljómsborđsleikari og ásláttarleikari gekk til liđs viđ bandiđ um svipađ leyti. Um sumariđ var drengjunum bođiđ í tónleikaferđ međ Sálinni hans Jóns míns ţar sem ţeir komu fram í pásum. Fariđ var víđa í ţessari tónleikaferđ og Skítamóralsmenn lögđu ţá grunninn ađ ţví trausta sambandi sem ţeir hafa átt viđ fólkiđ í landinu. Allar götur síđan hefur ţessi grunnur veriđ rćktađur af velvild og alúđ. Hápunktur sumarsins var ţegar sveitinni var bođiđ ađ verđa eitt af ađalböndunum í Galtalćk um verslunarmannahelgina 1995.

Áriđ 1996 var síđan ráđist af fullum krafti ađ ţví ađ gefa út heilan geisladisk. Frumraunin fékk nafniđ Súper og ţá fór ađ draga til tíđinda. Lögin Danslag og Stúlkan mín náđu fádćma vinsćldum enda voru ţarna á ferđinni gamlar dćgurlagaperlur sem áđur höđfu hljómar í eyrum landsmanna í flutningi Dúmbós og Steina og Deildarbungubrćđra. Einnig voru á plötunni lagiđ Sćlan, frábćrt lag eftir Gunnar Óla, Geimhringurinn, Haltu á mér hita, eftir Gunnar Óla viđ texta Sigurđar Fannars Guđmundsonar, og Madam Bé eftir Arngrím Fannar viđ texta Sigurđar Fannars, sem eru bćđi góđ og eldast vel. Ţađ var enginn annar en Jens Hansson Sálarmađur sem stjórnađi uppökum.

Skemmst er frá ţví ađ segja ađ Árni Matt hjá Mogganum missti sig ţegar heyrđi ţessa frábćru skífu. Hann lagđi sveitinni til nokkur vel valin orđ í tilefni tímamótanna. Platan var framleidd og gefin út af Sputz-útgáfunni sem var í eigu Arngríms Fannars sem á ţeim tíma gegndi umbođsstörfum fyrir sveitina. Ţetta sumar (1996) lék sveitin á stóra sviđinu á Ţjóđhátíđ í Vestmannaeyjum ásamt Greifunum og SSSÓL. Sumariđ leiđ og vetur kom og drengirnir undirbjuggu nýja plötu. Platan Tjútt kom út um voriđ 1997 og lagiđ Skjóttu mig eftir Sigurđ Fannar Guđmundsson varđ nokkurs konar ţemalag landsmanna ţađ sumariđ. Lagiđ Aparass var skrýtiđ en enn skrýtnara var myndbandiđ sem fylgdi laginu. Endrum og sinnum er ţađ spilađ á PoppTíví landsmönnum til mikillar gleđi. Einnig var ađ finna á plötunni nýja útgáfu af Sćlunni sem kom út á plötu áriđ áđur. Sćlan fór allt í einu af stađ og var á tímabili í öđru sćti Íslenska listans en á listanum var lagiđ í tćpa ţrjá mánuđi, var vinsćlasta lag sveitarinnar fram ađ ţessu. Á Tjútt voru einnig upptökur af gamla Gauknum ţar sem sveitin hakkađi í sig Gypsy Kings og fleiri standarda í mikilli syrpu sem hljómsveitin og plötusnúđar um allt land nota enn. Ţar var líka tónleikaupptaka af Stúlkan mín. Bandiđ var sannarlega komiđ til ađ vera.

Útvarpsstöđin FM957 hafđi tekiđ ástfóstri viđ drengina. Rás2 hélt áfram uppteknum hćtti og lék lög piltanna međ jöfnu millibili og meira ađ segja Bylgjan sem hent hafđi drengjunum öfugum út bara vegna nafnsins gat nú ekki annađ en tekiđ ţátt í gamaninu. Međ sveitinni og ţessum útvarpsstöđvum hefur veriđ langt og farsćlt samstarf. Skímó deildi sviđinu međ Sálinni á Ţjóđhátíđ 1997 og sagt er ađ Herjólfur sjálfur hafi aldrei skemmt sér eins vel. Karl Ţór Ţorvaldsson var á ţessum tíma orđinn ţreyttur á öllum ferđalögunum sem fylgdu bandinu og vinnutímanum. Hann sagđi skiliđ viđ sveitina sem kvaddi hann međ söknuđi. Mađur kemur í manns stađ og út úr Austfjarđaţokunni steig nýr liđsmađur. Einar Ágúst Víđisson tók sćti Skímó 5 og lék á ásláttarhljóđfćri og gítar og söng. Annar kafli sögu sveitarinnar var á enda og sá ţriđji ađ hefjast.

Um haustiđ tók viđ undirbúningur ađ ţriđju plötunni og Guđmundur Gíslason, ţá .altmulig mand. hjá SSSól, tók viđ umbođsmennsku af Arngrími Fannari. Liđsmenn sveitarinnar voru stađráđnir í ţví ađ koma plötuútgáfunni á hćrra plan. Öll lögin skyldu vera frumsamin og öllum fíflagangi stillt í hóf. En gleđin var ţó aldrei langt undan. Platan var öll unnin í hljóđveri útgefandans September viđ Grensásveg. Vinnslan viđ plötuna tók lengri tíma en viđ fyrri plötur en viđbrögđin létu ekki á sér standa.Lagiđ Farin eftir Einar Bárđarson var frumlutt í 19:20, fréttaţćtti Stöđvar 2, kvöldiđ fyrir skírdag og áđur en bandiđ vissi af var lagiđ orđiđ ţađ vinsćlasta á Íslandi. Farin sat á toppi Íslenska listans samfleytt í 3 vikur, leiđin frá Selfossi var orđin greiđ á toppinn. Platan Nákvćmlega leit dagsins ljós í sumarbyrjun 1998 og varđ strax mest selda plata landsins og seinna um sumariđ rauf Skítamórall 5000 eintaka múrinn og fékk afhenta sína fyrstu gullplötu. Ţetta voru góđir dagar fyrir sveitina og alls stađar var tóku áhorfendur henni opnum örmum.

Farin var tilnefnt til íslensku tónlistarverđlaunanna áriđ 1998 sem besta lag ársins. Nákvćmlega var hlađin smellum, fyrir utan Farin náđu Drakúla, lag Herberts viđ texta Sigurđar Fannars, Nákvćmlega eftir Arngrím og Gunnar viđ texta Skímómanna og Sílíkon, lag Einars Ágústs og Einars Bárđar, öll miklum vinsćldum. Á plötunni var í fyrsta skipti notuđ margmiđlunartćkni ţar sem hćgt var ađ finna texta, myndir af bandinu, myndbönd og frjálslegri útgáfu af sögu sveitarinnar en hér er skrifuđ. Skítamórall var orđin ein allra vinćlasta sveit landsins. Bandiđ gerđi samning viđ Heklu og fóru allir út á "Golf" eđa "gólf" međ einkanúmer, skímó frá eitt upp í fimm. Í kjölfariđ var framleidd heimildamynd um sveitina sem sýnd var á Stöđ 2.

Um jólin var gefin út bók um sveitina og ţví fylgdi mikiđ fjölmiđlafár. Einar Ágúst og Gunnar Óla sungu jólalagiđ Handa ţér inn á plötuna Skemmtileg ţessi jól. Lagiđ sem er eftir Einar Bárđarson hefur í seinni tíđ orđiđ ţekkt sem Skítamóralsjólalagiđ ţrátt fyrir ađ ađrir međlimir sveitarinnar hafi ţar hvergi komiđ ađ. Ţetta ár var sveitin valin hljómsveit ársins á Hlustendaverđlaunum FM957 og einnig töldu hlustendur hana vera besta á balli og ţeim titli hélt hún tvö ár í röđ. Áfram hélt ćvintýriđ og sveitin fór í hljóđver á ný. Undirbúningur ađ nćstu plötu var hafinn. Miklar vćntingar voru gerđar til sveitarinnar og strákunum var ljóst ađ erfitt yrđi ađ toppa síđustu skífu og ţćr vinsćldir sem henni fylgdu. Sami háttur var hafđur á og síđast, ţ.e. sveitin samdi lög í sameiningu og kallađ var eftir lögum eftir ađra höfunda. Platan sem fékk nafniđ Skítamórall kom síđan út á vordögum 1999. Platan varđ helmingi dýrari í framleiđslu en Nákvćmlega enda var vandađ mjög til verksins.

Lagiđ Einn međ ţér eftir Gunnar Ólason var fyrsta lag í spilun og náđi fádćma vinsćldum. Í kjölfariđ fylgdi rokkslagarinn Hey, ţú eftir Einar Ágúst viđ texta hans og Arngríms sem enn er eitt vinsćlasta lag sveitarinnar. Lögin Svífum og Fljúgum áfram sem eru samstarfsverkefni Einars Ágústs og Herberts slógu í gegn og eru ennţá međ mest spiluđu lögum sveitarinnar. Síđasta lagiđ sem fór í spilun af ţessari plötu var Myndir eftir Einar Bárđarson. Platan var mun fágađari og betur unnin en allt ţađ efni sem sveitin hafđi áđur sent frá sér. Allur frágangur á umslagi og öđru var hinn smekklegasti. Herbert Viđarsson sá um hönnun á öllu prentefni og umslagi plötunnar. Platan seldist örlítiđ hćgar en Nákvćmlega ţrátt fyrir ađ innihalda í raun fleiri vinsćl lög. Platan hefur ţó selst jafnt og ţétt frá árinu 1999 og er nú nćstmest selda plata sveitarinnar.

Sumariđ 2000 dró til tíđinda. Einar Ágúst Víđisson og Telma Ágústsdóttir voru valinn til ađ syngja fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Keppnin fór fram í Stokkhólmi um voriđ og náđi Austfirđingurin ágćtis árangri međ Telmu. Ţau enduđu í 12. sćti sem er einn besti árangur Íslands til ţessa. Á sama tíma unnu strákarnir tvö ný lög eftir Einar Bárđarson, Ennţá og Međ ţér. Lögin voru tekin upp í Sýrlandi og Grjótnámunni međ nýjum útgefanda, Skífunni. Ţađ er skemmst frá ţví ađ segja ađ lögin voru jafn dýr í framleiđslu og síđasta plata sveitarinnar enda mikiđ lagt í ţau. Útgefandinn fékk vćgt taugaáfall vegna kostnađar en áhangendur sveitarinnar kćttust. Lögin komu út á plötunni Svona er sumariđ 2001. Međ ţér var nokkuđ hefđbundin sumarballađa og náđi miklum vinsćldum enda hafđi Einar Ágúst sem var forsöngvari í laginu veriđ áberandi mánuđina á undan. Lagiđ Ennţá var nýstárleg útgáfa, ţar kvađ viđ nýjan tón í stefnu sveitarinnar en Gunnar Ólason útsetti lagiđ í samvinnu viđ Ţorvald Bjarna Ţorvaldsson. Myndband var gert viđ Ennţá en Samúel Bjarki og Gunni Palli framleiddu ţađ. Myndbandiđ var valiđ myndband ársins á Hlustendaverđlaunum FM957 ţetta ár.

Um haustiđ var síđan tekiđ upp síđasta lag sveitarinnar í kafla ţrjú. Lagiđ Ćđi er eftir Stuđmenn og er ađ finna í myndinni Međ allt á hreinu ţar sem hljómsveitin flytur lagiđ á stórdansleik í Selfossbíói. Egill syngur lagiđ ţar sem hann hangir í netadrćsum fyrir ofan sviđ um ţađ bil ţegar Gćrurnar taka rafmagniđ af og allt endar međ ósköpum. Lagiđ var sett á plötu ţar sem margir íslenskir tónlistarmenn sungu valin lög úr myndinni fyrir jólin 2000. Lagiđ Ćđi hefur aldrei komiđ út á plötu međ Stuđmönnum en ţađ var samiđ um Rúnar Júlíusson gćđablóđ frá Keflavík. Eftir ţetta tóku viđ skrýtnir tímar hjá sveitinni. Langvarandi ţreyta var farin ađ gera vart viđ sig og samstarfsörđugleikar komu upp. Upp úr ţví ákvađ hljómsveitin ađ hćtta og ţriđja kaflanum í sögu sveitarinnar lýkur.

Margt dreif á daga piltanna. Gunnar Óla fór í Evróvisjón međ Two Tricky og stofnađi sveitina Plast. Herbert Viđarson spilađi lítillega međ sveitinni Miđnes og Boogie Knights ásamt ţví ađ stofna eigiđ auglýsingafyrirtćki. Arngrímur Fannar spilađi međ Boogie Knights en einbeitti sér mest ađ háskólanámi. Einar Ágúst söng međ hinum og ţessum, međal annars eitt lag međ Greifunum. Einar vann Landslagiđ voriđ 2001, stofnađi Engla og hélt áfram farsćlum útvarpsferli, nú á FM957 og reyndi einnig fyrir sér á PoppTíví. Jóhann Bachman gerđi sér lítiđ fyrir og vippađi sér .óvart. í Írafár sem varđ síđar ein vinsćlasta sveit landsins.

En vćntumţykja liđsmanna hvers í annars garđ og í garđ sameiginlegra verka dregur ţá alltaf saman og eitthvađ segir mér ađ ţetta sé ekki síđasta plata sveitarinnar. Jólin 2002 ákváđu ţeir loksins ađ koma aftur saman. Endurkoman var skipulögđ og kom sveitin saman á Hlustendaverđlaunum FM957 í ár. Viđbrögđin létu á sér standa, endurkoman var glćsileg. Sveitin hefur spilađ jafnt og ţétt međ stuttum hléum fram á haust en ţessi safnplata sem ţú heldur á var undirbúin í hléunum. Tvö ný lög eru á plötunni. Ţau eru eftir forsöngvarana Einar Ágúst og Gunnar Ólasson. Ţađ má segja margt um Skítamóral og alltaf eru tvćr hliđar á öllum málum. Sumir elska sveitina og ađrir hata hana. En ţađ verđur aldrei tekiđ frá henni ađ stanslaus vinna og barátta frá 1989 hefur skilađ henni hingađ međ safndisk međ besta efni hennar og bjartir tímar eru fram undan. Skítamóralsmenn fylgdu í kjölfar sveita eins og Sálarinnar hans Jóns míns og Stuđmanna en um leiđ ruddu ţeir brautina fyrir nýja kynslóđ sveita af öllu landinu og sýndu ţađ og sönnuđu fyrir sjálfum sér og ţjóđinni ađ ţađ er sannarlega hćgt ađ spila fyrir land og lýđ, hafa gaman af og eiga jafnframt til hnífs og skeiđar.

Heimild: www.tonlist.is
© Copyright 2003 PROMO Hönnun: DesignEuropA.com
promo@promo.is