Hljómsveitin Silfur var stofnuð í byrjun árs 2008 af Andra trommara og Sveini gítarleikara en þeir höfðu spilað saman í hljómsveitinni 8 Villt nokkru áður. Á bassann fundu þeir Stefán Þór sem hafði spilað með Andra í Black Out. Á tíma tölvu og tækni þá fannst söngkonan einmitt á Myspace og var þar komin Rut Magnúsdóttir og þannig skipuð hljóðritaði sveitin þrjú lög.
Í byrjun árs 2009 sagði Rut skilið við sveitina við mæknum tók Thelma Hafþórsdóttir.
Thelma tók þátt í þættinum um Bandið hans Bubba og varð í 3ja sæti og vakti gífurlega mikla athygli fyrir kraftmikinn söng og líflega framkomu. Hljómsveitin hefur nú þegar hljóðritað eitt lag með Thelmu og er það lagið Lífið eftir Svenna.
Silfur hefur farið víða um land og allstaðar fengið hreint frábærar viðtökur enda lagavalið með eindæmum fjölbreytt og skemmtilegt og höfðar til allra aldurshópa
Meðlimir Silfur eru :
Andri Hrannar trommur
Sveinn Páls gítar
Stefán Þór bassi
Thelma söngur
|