Hljómsveitin SÍÐASTI SJENS hefur vakið athygli síðastliðin ár fyrir fjörugt og kraftmikið Blús&Rokk prógramm. Hjarað slær á bláu nótunum:
„Any time is Bluestime.“
Síðasti sjens er þó fyrst og fremst danshljómsveit. Á efnisskránni eru gömlu góðu slagararnir, sem allir þekkja, og svo auðvitað góður skammtur af Country tónlist fyrir línudansara. Einnig lög með Bítlunum, Rolling Stones, Queen, Eric Clapton, Stevie Ray Vaughan, Bubba, GCD og fleirum.
Hljómsveitina skipa Jens Einarsson, ritstjóri og ljósmyndari, sem syngur og leikur á gítar, Þórir Ólafsson, stýrimaður, smiður og rafvirki, sem leikur á bassa og syngur, og Þorbergur Ólafsson, verslunarmaður, hljóðkerfasérfræðingur og mótorsportari, sem leikur á trommur.
Jens Einarsson hefur gefið út einn CD með frumsömdu efni, Haltu mér fast, sem kom út 2003. Á diskinum eru átta lög og textar eftir Jens.
Hann hefur einnig samið tónlist fyrir sérstök verkefni. Má þar nefna kennslumyndböndin Frumtamning og Þjálfun eftir Benedikt Líndal reiðkennara, sem hafa selst í þúsundum eintaka um allan heim.
|