Heim promo@promo.is
Böndin PROMO Atburðir Sendu fyrirspurn Póstlistinn
Rokkabillýband Reykjavíkur    
* Austfirðingaball ...
Á móti sól
Austurlandið
Bardukha
Bermuda
Björgvin Halldórsso...
BoogieNights
Dalton
Danshljómsveit Frið...
Dísel
DJ Kiddi Bigfoot
DJ Siggi Hlö
Dúkkulísur
Eins og hinir
Fimm á Richter
Geirfuglarnir
Geirmundur
Greifarnir
Helgi Björns
Hrafnar
Hunang
Hvar er Mjallhvít?
Í svörtum fötum
Ímynd
Ína og Hljómsveit
Ingó & Veðurguðirni...
Íslenzka sveitin
Jet black Joe
Karma
Klaufar
Kóngulóarbandið
Land og synir
Logar
Lúdó og Stefán
M-blues project
Mannakorn
Matti Idol og Draug...
Milljónamæringarnir
Mono
Napoleon
Nýdönsk
Óðs Manns Æði
Rokkabillýband Reyk...
Sagaklass
Sálin
Sambandið
Síðasti sjens
Silfur
Sixties
Skítamórall
Skriðjöklar
Sniglabandið
Sólon
Spútnik
SSSól
Stuðmenn
Súellen
Tilþrif
Touch
Úlfarnir
Umsvif
Upplyfting
Vinir Vors & blóma
Von
Þursaflokkurinn
  
Rokkabillýbandið hefur dustað rykið af hljóðfærunum og tekið til starfa enn á ný en hlé var gert á starfsseminni eftir tónleikaferð þá, er farinn var síðla haust 2008.

Upprunalegir félagar ásamt Tómasi Tómassyni, þeir Björn Vilhjálmsson og Sigfús Óttarsson eru nú fjarri góðu gamni enda búsettir erlendis og vart væntanlegir til landsins miðað við ástandið sem nú ríkir og var því brugðið á það ráð að tvískipta sveitinni.

Sett hefur verið á legg svokölluð „Íslandsdeild“ Rokkabillýbandsins og eru þar á ferð ásamt Tómasi, fyrrum félagi til margra ára, Birgir Baldursson trommusnillingur (sem einnig var með í för haustið 2008) og nafni hans Birgir Kárason bassagúrú mikið sem rak óvænt á fjörur sveitarinnar. Auk þess hefur Andri Guðmundsson hljómborðsleikari oft kenndur við sína fyrrum sveit ÍRAFÁR verið kallaðir út þegar mikið stendur til.

Þannig skipuð hefur sveitin verið á ferð, mest þó leikið fyrir dansi, bæði einir og sér, þá oft nefnd "Dægurlagadeild" Rokkabillýbandsins og hafa þá verið með för snillingar á borð við Magna Ásgeirsson, Stefán Hilmarsson, Regína Ósk, Bjartmar Guðlaugsson Ingólfur (Veðurguð) Þórarinsson ofl. Sveitin þykir vel til undirleiks fallinn enda vel mannað í hvert rúm.

Stefnt er síðan á að sinna tónleikahaldi og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið og nú þegar hafa verið bókaðir nokkrir tónleikar á næsta ári (2010) og að einhver ný lög fylgi síðan í kjölfarið.

Einngi er hægt að fylgjast betur með á hinni ört vaxandi Snjáldur-síðu sveitarinnar og hlýða á lög af síðustu plötu.

Rokkabillýband Reykjavíkur á Facebook




Ný plata frá Rokkabillýbandi Reykjavíkur (ágúst 2008)

Reykjavík kominn út
Rokkabillýband Reykjavíkur sú gamalreynda sveit hefur nú vaknað til lífsins og kveður sér hljóðs með nýrri plötu. Platan hefur hlotið nafnið Reykjavík eftir samnefndu lagi og kom út fimmtudaginn 28. ágúst kl. 13:19. Titillagið Reykjavík hefur verið töluvert í spilun á Rás 2 og einnig á X-inu FM97,7 og fengið feikna góð viðbrögð. Lagið Séð og hefur ekki síður verið að gera það gott á spilunarlista Bylgjunnar..

Ýmsir höfundar
Reykjavík inniheldur tíu lög, öll með íslenskum textum og koma nokkrir höfundar við sögu. Tómas Tómasson söng- og gítarleikara sveitarinnar á um helming laga og texta. Guðmundur Jónsson og Hreimur Örn Heimisson eiga sitt lagið hvor, Guðmundur við eigin texta, lag Hreims við texta Kristjáns Hreinssonar. Eitt lag er samvinnuverkefni þeirra Tómasar og Guðmundar og að auki eru þrjú erlend lög við texta Kristjáns Hreinssonar.
(Sjá lagatitla )

Hljóðrituð í Ríkisútvarpinu
Platan var að grunninum til hljóðrituð í Stúdíó 12 Ríkisútvarpinu Efstaleiti og stjórnaði Tómas upptökum en Óskar Páll Sveinsson hljóðblandaði í Stúdíó Draumi. Vilhjálmur Warén hannaði umslagið og það er Geimsteinn, útgáfufyrirtæki Rúnars Júlíssonar sem gefur út.

Um landið þvert og endilangt
Rokkabillybandið ásamt hljómsveitinni Vax halda í heljarinnar tónleikaferð á næstu vikum og hefur fyrirbærið verið nefnt „Rokk&Ról’08 - Vax og Rokkabillýband Reykjavíkur um landið þvert og endilangt“ og telur um 15 tónleika víðsvegar um landið. Tónleikaferðin hófst um síðustu helgi austur á fjörðum og lýkur á suðvestur horninu í lok september. (Sjá Tónleikadagskrá )

Rokkabillybandið 20 ára
Þessi margrómaða sveit fagnar einnig 20 ára afmæli um þessar mundir og er skipuð stofnmeðlimunum þeim Tómasi Tómassyni söng- og gítarleikara, Birni Vilhjálmssyni kontrabassaleikara og Sigfúsi Óttarssyni trommuleikara auk Emils Guðmundssonar ásláttarleikara.

Fyrrum félagi með í för
Sigfús á þó ekki heimangengt að þessu sinni og mun Birgir Baldursson halda uppi merkjum sveiflunnar við þetta tækifæri. Birgir er Rokkabillýbandinu að góðu kunnur en hann starfað með sveitinni í um tvö ár á sínum tíma, auk þess að hafa starfað með Sálinni, Unun, S/H Draum ofl.

Plata vikunnar á Rás 2
Reykjavík var íslenska plata vikunnar á Rás 2 vikunnar (1.-6. sept. 2008) og eins og venja er fær viðkomandi plata umsögn í lok vikunnar og er eftirfarandi tekið af heimasíðu Popplands „Andrea Jóns gaf Rokkabillýbandinu toppeinkun „

Með bestu kveðjum
Rokkabillýband Reykjavíkur

Allar nánari upplýsingar
Tómas Tómasson s. 868-0900
Netfang: rockabillybandreykjavikur@gmail.com
Rokkabillýbandið á Facebook
Geimsteinn ehf s. 421-2717
Heimasíða: www.geimsteinn.is
© Copyright 2003 PROMO Hönnun: DesignEuropA.com
promo@promo.is