Þeir félagar Magnús Eiríkssonar og Pálmi Gunnarsson hafa skilað ótrúlega sterkum tónlistararfi sem hefur átt greiða leið inn í þjóðarsálina. Þetta eru söngvar sem allir kunna og kyrja með í gleði og sorg. Söngvar um upplifanir og tilfinningar sem eru sameiginleg reynsla okkar, sungnir á máli sem við skiljum öll. Lög á borð við Ó þú, Braggablús, Sölva Helgason, Lillu Jóns, Elska þig enn, Einhversstaðar einhvern tímann aftur, Óbyggðirnar kalla, Á rauðu ljósi, eru aðeins brot af því ódauðlega lagasafni sem liggur eftir þá félaga.
|