Það þarf ekki fara mörgum orðum um þessa merku sveit hún hefur skemmt landanum kynslóð eftir kynslóð en svona rétt til upprifjunar.
Lúdó hét upphaflega Plútó og var stofnuð 1957-1958 og eru 3 upphaflegu meðlimir enn í sveitinni, þeir Hans Þ.Jensson – saxofon, Elfar Berg –hljómborð og Stefán sem bættist í hópinn hálfu ári síðar. Hinir 3 meðlimir hljómsveitarinnar í dag eru Arthur Moon-bassi sem kom inn 1962 og Hallvarður Óskarsson - trommuleikari sem kom inn fyrir 8-9 árum og Þorleifur Gíslason saxofonleikari og útsetjari sem hefur verið viðloðandi sveitina í áratugi.
Gegnum tíðina hafa ótal þekktir hljómlistamenn komið við sögu og er Lúdó og Stefán enn svo vitað sé, elsta starfandi hljómsveit landsins og þarf að leita út fyrir landsteinana að 50 ára gamalli rokksveit með svo marga stofnfélaga innanborðs.
|