Hljómsveitina HRAFNA þarf vart orðið að kynna enda verið með þeim allra vinsælustu síðustu misseri og hafa átt hvern smellin á fætur öðrum er hafa setið sem þéttast vikum saman á vinsældarlistum útvarpsstöðvanna. Nægir þar að nefna lög eins og RAGGA, FRÍÐA OG RÓSA, KALLINN ER DAUÐUR og nú að síðustu VELKOMIN Á BÍSANN í samstarfi við meistara BJARTMAR GUÐLAUGSSON sem syngur með og er einnig höfundur lags og texta.
Meðlimir HRAFNA eru hoknir af reynslu og hafa menn þar á bæ víða komið við og má þar nefna sveitir á borð við PAPA og LOGA oft kennda við Vestmanneyjar enda er sveitin skipuð Eyjamönnum að mestu og fara þar fremstir Hermann Ingi Hermannsson (söngur kassagítar), Hlöðver Guðnason (gítar mandolin söngur), Papa-bræðurnir svokölluðu Georg Ólafsson (bassi söngur) og Vignir Ólafsson (gítar banjo trommur söngur) og Hilmar Sverrisson (hljómborð harmonikka söngur) sem er sá eini sem kemur „ofan af landi“ en Hilmar á ættir sínar að rekja í sveifluna norður í Skagafjörð.
|