Það þarf ekki að fara mörgum orðum um meistara Geirmund Valtýson og hljómsveit. Skagfirski sveiflukóngurinn hefur staðið vaktina og skemmt landsmönnum af alúð í ómuna tíð og Skagfirska sveiflan mun hljóma áfram og verður ávallt í hávegum.
Hér neðar er umfjöllun um nýju plötuna sem kappinn sendi frá sér nýverið.
NÝ PLATA.
Einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, Geirmundur Valtýsson er að hefur sent frá sér nýja plötu, Alltaf eitthvað nýtt. Sveifla, Rokkabilly og Kántrý sem kemur öllum í gott skap. Hann hefur selt mest 8.000 plötur þannig að hann á svo sannarlega aðdáendur um allt land. Fjöldi gestasöngvara kemur fram á plötunni, má þar nefna Pál Rósinkrans, Snörurnar, Berglindi Björk Jónasdóttir, Helgu Möller og Guðrúnu Gunnarsdóttir.
Geirmundur spilar um hverja einustu helgi, allt árið um kring. Óneitanlega einn duglegasti tónlistarmaður okkar. Platan er tekin upp í MK hljóðveri hjá Magnúsi Kjartanssyni sem stjórnaði upptökum ásamt Vilhjálmi Guðjónssyni. Fyrstu lögin af plötunni eru farin að hljóma í útvarpi en alls eru 12 lög á plötunni sem kunnugir segja þá fjölbreyttustu sem Gerimundur hefur gert.
|