Hljómsveitin FIMM Á RICHTER var stofnuð mjög seint á síðustu öld með það að markmiði að skemmta á árgangamóti i Hagaskóla eina kvöldstund á Hótel Borg. Rætur sveitarinnar standa djúpt í dansvænu gullaldarrokki í bland við yngri rokkperlur og melódíur. Í dag skipa sveitina Guðjón B. Hilmarssons trommur, Kristinn Ingi Sigurjónsson bassi, Þórhallur Andrésson gítar, Ásgrímur Guðmundsson gítar og Benedikt Elfar söngur.
Nýverið gekk Idol stjarnan Lísa Einars til liðs við sveitina. Lísa Einars geislar og glóir eins og hraunbreiða á sviðinu og getur ásamt Benedikt Elfari kveikt í hvaða sal sem er!
FIMM Á RICHTER er sveit sem brúar kynslóðabilið!
Labbaðu eftir Memory Lane og inn í framtíðina með FIMM Á RICHTER.
|