Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar hefur starfað óslitið frá árinu 1995 og spilað víða um land. Hljómsveitin tekur að sér að spila á þorrablótum, árshátíðum og einkasamkvæmum hverskonar og hefur nánast sérhæft sig í að spila á mjög aldursblönduðum samkomum. Þá hefur hljómsveitin átt fastan sess í gegnum árin m.a á Oddvitanum Akureyri og síðan Vélsmiðjunni skemmtistað Akureyri. Ef um er að ræða stjórnun á fjöldasöng og/eða undirleik undir söngatriði, getur það verið til skoðunar í hverju tilviki.
|