Dúkkulísur eiga 25 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni er hljómsveitin að gefa út geisladisk – Dúkkulísur 25 – sem inniheldur sambland af gömlum lögum frá sokkabandsárum hljómsveitarinnar, lögum sem voru áður óútgefin og svo nýju efni sem hefur verið í vinnslu síðastliðið ár. Dúkkulísur gefa sjálfar út diskinn, Eberg sá um upptökur og hljóðblöndun á nýja efninu og Rökkur (www.rokkur.net) sá um hönnun og útlit disksins. Diskurinn er nú þegar kominn í dreifingu og fæst í helstu plötuverslunum landsins.
Dúkkulísur eiga sér langa sögu. Hljómsveitin var stofnuð á Egilsstöðum haustið 1983. Dúkkulísur fóru strax að semja eigin tónlist ásamt því að spila gamla og góða slagara. Þær tóku þátt í hljómsveitakeppni Atlavíkurhátíðarinnar árið 1984, lentu þar í öðru sæti og sigruðu síðan Músíktilraunir sama ár. Í kjölfar Músíktilrauna bauðst hljómsveitinni plötusamningur og þann 19.júní 1985 kom fyrsta breiðskífa þeirra út. Pamela í Dallas og Skítt með það eru þekktustu lögin af þeirri breiðskífu. Árið 1986 kom síðan seinni breiðskífa hljómsveitarinnar út en þar var meðal annars að finna lagið Svarthvíta hetjan mín, sem hefur komið út á ófáum diskum síðan.
Á þessum árum spilaði hljómsveitin víða, en árið 1987 tóku þær sér hvíld. Stelpurnar hafa þó komið saman öðru hverju við hin ýmsu tækifæri síðan. Árið 2003, eftir langt og gott hlé, tók hljómsveitin aftur formlega til starfa. Í ágúst það ár gáfu þær út lagið Konur allsstaðar og í maí 2004 kom út lagið Halló-sögustelpa. Með því er brotið blað í sögu Dúkkulísa, því með þessu lagi hafa þær gert sitt fyrsta tónlistarmyndband. Óhætt er að segja að í síðustu lögum megi heyra nýjan tón, en lagasmíðar stelpnanna hafa þroskast...og batnað með árunum!
Lagið Halló-sögustelpa er eftir Erlu Ragnarsdóttur,Grétu Sigurjónsdóttur og Dúkkulísur en textinn eftir Andreu Gylfadóttur. Að upptökum og hljóðvinnslu standa þeir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Vignir Snær Vigfússon. Myndbandið er að hluta til teiknimynd og að hluta til raunverulegt, þar sem kvikmyndatöku og þrívíddargerð er blandað saman. Það er fyrirtækið Poster sem stendur að gerð myndbandsins í samvinnu við fyrirtækið Þeir tveir og Dúkkulísur. Stefán Vilhelmsson, framkvæmdastjóri Poster og Gunnar Björn Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaður og leikstjóri eru framleiðendur myndbandsins.
Lagið Halló sögustelpa hefur fengið jákvæðar undirtektir og verður eitt af lögum á sumarsafndiski Skífunnar Svona er sumarið 2004 sem kemur út mánaðarmótin júní/júlí.
Dúkkulísur munu spila á dansleikjum og uppákomum í sumar og næsta vetur. Stefnt er að frekari útgáfu á nýjum lögum á árinu og er stefnan sett á útgáfu geisladisks næsta vor.
Dúkkulísur eru:
Erla Ragnarsdóttir söngur
Guðbjörg Pálsdóttir trommur
Harpa Þórðardóttir hljómborð og raddir
Adda María Jóhannsdóttir slagverk og raddir
Hidlur Voggósdóttir hljómborð og raddir
Gréta Sigurjónsdóttir gítar
Erla Ingadóttir bassi
|