Heim promo@promo.is
Böndin PROMO Atburðir Sendu fyrirspurn Póstlistinn
Dísel    
* Austfirðingaball ...
Á móti sól
Austurlandið
Bardukha
Bermuda
Björgvin Halldórsso...
BoogieNights
Dalton
Danshljómsveit Frið...
Dísel
DJ Kiddi Bigfoot
DJ Siggi Hlö
Dúkkulísur
Eins og hinir
Fimm á Richter
Geirfuglarnir
Geirmundur
Greifarnir
Helgi Björns
Hrafnar
Hunang
Hvar er Mjallhvít?
Í svörtum fötum
Ímynd
Ína og Hljómsveit
Ingó & Veðurguðirni...
Íslenzka sveitin
Jet black Joe
Karma
Klaufar
Kóngulóarbandið
Land og synir
Logar
Lúdó og Stefán
M-blues project
Mannakorn
Matti Idol og Draug...
Milljónamæringarnir
Mono
Napoleon
Nýdönsk
Óðs Manns Æði
Rokkabillýband Reyk...
Sagaklass
Sálin
Sambandið
Síðasti sjens
Silfur
Sixties
Skítamórall
Skriðjöklar
Sniglabandið
Sólon
Spútnik
SSSól
Stuðmenn
Súellen
Tilþrif
Touch
Úlfarnir
Umsvif
Upplyfting
Vinir Vors & blóma
Von
Þursaflokkurinn
  
Hljómsveitin Dísel hefur, þrátt fyrir ungan aldur, látið mikið fyrir sér fara. Síðla ársins 2008 gáfu þeir piltar út endurútsetningu á tímalausa slagaranum „Stál og hnífur“ eftir Bubba Morthens sem vakti mikla lukku. Hljómsveitin tók þar næst þátt í keppninni „Sumarsmellur FM 95,7“ hjá fyrrnefndri útvarpstöð og hafði þar sigur úr bítum með laginu „Sumar á ný“ en það kom sér vel fyrir sumar þyrsta landsmenn sem aldrei höfðu verið jafn nálægt því að falla í þunglindi yfir endalokum sumarsins.

Á böllum eru þeir Dísel-trukkar þó bestir því þar skarta þeir afburða góðum hljóðfæraleikurum með einn af helstu söngvörum landsins í fararbroddi. Eiríkur Hafdal (Eiki), söngvari hljómsveitarinnar, sem átti hjörtu landsmanna í Idol keppninni hér forðum daga stendur fremst á sviði og tryllir æstan lýðinn með skemmtilegri sviðsframkomu og raddbeitingu. Við hlið hans stendur Vernharður Bjarnason (Venni), gítarleikari, en hann er oftar en ekki kenndur við Durex þegar kynlífssjúkt kvenfólkið bankar uppá hjá honum. Venni spilaði lengi vel með hljómsveitinni Sólon en hætti þar síðla árs 2007. Við hlið Venna stendur Andri Þór Ólafsson (Sjúddan), bassaleikari, en hann hefur leikið með mörgum tónlistarmanninum og er nýlega kominn frá stórborginni Lundúnum þar sem hann stundaði nám við bassaleik. Fyrir aftan þá fyrrnefndu situr Magnús Ingi Sveinbjörnsson (Maggi Trymbill), trommuleikari, en hann stundar nám við FÍH og hefur leikið með hljómsveitum á borð við Envy of Nona, 6íJazz o.fl.










































© Copyright 2003 PROMO Hönnun: DesignEuropA.com
promo@promo.is