Heim promo@promo.is
Böndin PROMO Atburðir Sendu fyrirspurn Póstlistinn
BoogieNights    
* Austfirðingaball ...
Á móti sól
Austurlandið
Bardukha
Bermuda
Björgvin Halldórsso...
BoogieNights
Dalton
Danshljómsveit Frið...
Dísel
DJ Kiddi Bigfoot
DJ Siggi Hlö
Dúkkulísur
Eins og hinir
Fimm á Richter
Geirfuglarnir
Geirmundur
Greifarnir
Helgi Björns
Hrafnar
Hunang
Hvar er Mjallhvít?
Í svörtum fötum
Ímynd
Ína og Hljómsveit
Ingó & Veðurguðirni...
Íslenzka sveitin
Jet black Joe
Karma
Klaufar
Kóngulóarbandið
Land og synir
Logar
Lúdó og Stefán
M-blues project
Mannakorn
Matti Idol og Draug...
Milljónamæringarnir
Mono
Napoleon
Nýdönsk
Óðs Manns Æði
Rokkabillýband Reyk...
Sagaklass
Sálin
Sambandið
Síðasti sjens
Silfur
Sixties
Skítamórall
Skriðjöklar
Sniglabandið
Sólon
Spútnik
SSSól
Stuðmenn
Súellen
Tilþrif
Touch
Úlfarnir
Umsvif
Upplyfting
Vinir Vors & blóma
Von
Þursaflokkurinn
  
Boogienights er plötusnúða-gengi sem komnir eru af léttasta skeiði og geta því leikið lög sem við öll viljum heyra þegar við skemmtum okkur.
Siggi Hlö, Valli Sport, DJ Fox, Kiddi Bigfoot og Örlygur Smári halda uppi sjóðheitri stemmingu og sjá til þess að kvöldið verður frábært í alla staði.

Siggi Hlö
Siggi Hlö er ´68 módel og hefur verið plötusnúður frá því að hann var 12 ára gamall í Seljahverfinu. Á að baki langan feril í útvarpi og sjónvarpi og hefur gríðarlega reynslu sem plötusnúður á skemmtistöðum.
Er í dag með vinsælasta útvarpsþátt landsins á Bylgjunni, Veistu hver ég var ? á laugardögum frá kl. 16.00 - 18.30.

Valli Sport
Valli Sport kláraði Réttó árið 1984 með sítt að aftan í hvítum samfesting með herðapúðum og gloss. Valli er flestum kunnur fyrir störf sín í útvarpi og sjónvarpi. Valli er gríðarlegur stuðbolti og hefur starfaði sem plötusnúður í um 20 ár með hléum.

Kiddi Bigfoot
Kidda Bigfoot þar vart að kynna sem plötusnúð en hann hefur spilað nær sleitulaust frá 15 ára aldri á skemmtistöðum og er líklega eini eftirlifandi plötusnúðurinn sem spilaði í Glæsibæ. Þrátt fyrir það lítur hann enn jafn vel út.
Kiddi hefur verið skemmtanastjóri og plötusnúður á nær öllum vinsælustu skemmtustöðum landsins síðustu 20 ár ásamt því að hafa spilað víða um heim.

DJ FOX
Foxinn er fæddur 65 þótt ótrúlegt sé og byrjaði sem plötusnúður í Réttó og Bústöðum þegar 80´s músíkin var að byrja sigurför sína um heiminn.
Viskubrunnur í músík og alþýðlegur drengur.
Foxinn er fæddur stuðpinni og hefur áralanga reynslu í að halda uppi góðu fjöri í t.d. re-unions, afmælum, o.fl.

Örlygur Smári
Örlygur Smári, sem venjulega gengur undir nafninu Öggi hefur verið að stíga sín fyrstu spor sem DJ að undanförnu við hreint út sagt frábærar undirtektir. Öggi hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi síðan snemma á tíunda áratugnum og árið 2000 samdi hann framlag Íslands til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Tell Me! (12. sæti). Eftir það flutti hann til Svíþjóðar þar sem hann starfaði sem tæknimaður, lagahöfundur og upptökustjóri.
Árið 2005 flutti Öggi aftur til Íslands og opnaði eigið hljóðver. Síðan hefur hann unnið með fjölda íslenskra tónlistarmanna sem upptökustjóri, tæknimaður og lagahöfundur. Eitt af helstu verkefnum hans er platan Allt fyrir ástina með Evróvisjón-goðinu Páli Óskari en platan naut mikilla vinsælda og náði platínu. Öggi samdi fyrstu þrjár smáskífurnar sem allar náðu efsta sæti íslensku vinsældarlistanna.
© Copyright 2003 PROMO Hönnun: DesignEuropA.com
promo@promo.is