Heim promo@promo.is
Böndin PROMO Atburðir Sendu fyrirspurn Póstlistinn
Björgvin Halldórsson    
* Austfirðingaball ...
Á móti sól
Austurlandið
Bardukha
Bermuda
Björgvin Halldórsso...
BoogieNights
Dalton
Danshljómsveit Frið...
Dísel
DJ Kiddi Bigfoot
DJ Siggi Hlö
Dúkkulísur
Eins og hinir
Fimm á Richter
Geirfuglarnir
Geirmundur
Greifarnir
Helgi Björns
Hrafnar
Hunang
Hvar er Mjallhvít?
Í svörtum fötum
Ímynd
Ína og Hljómsveit
Ingó & Veðurguðirni...
Íslenzka sveitin
Jet black Joe
Karma
Klaufar
Kóngulóarbandið
Land og synir
Logar
Lúdó og Stefán
M-blues project
Mannakorn
Matti Idol og Draug...
Milljónamæringarnir
Mono
Napoleon
Nýdönsk
Óðs Manns Æði
Rokkabillýband Reyk...
Sagaklass
Sálin
Sambandið
Síðasti sjens
Silfur
Sixties
Skítamórall
Skriðjöklar
Sniglabandið
Sólon
Spútnik
SSSól
Stuðmenn
Súellen
Tilþrif
Touch
Úlfarnir
Umsvif
Upplyfting
Vinir Vors & blóma
Von
Þursaflokkurinn
  
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um meistara Bó - einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og löngu orðin goðsögn í lifanda lífi.

ÆFIÁGRIP

Björgvin Helgi Halldórsson er íslenskur söngvari og þekktastur fyrir að syngja dægurlög og ballöður af ýmsum toga sem flest hafa náð gríðarlegum vinsældum á Íslandi.Björgvin er fæddur og uppalin í Hafnarfirði. Fæðingardagur hans er þann 16. apríl 1951. Hann hóf feril sinn með Hafnfirsku hljómsveitinni Bendix og frá þeirri stundu er hann steig fyrst á svið með þeim í Flensborg og hóf að syngja bítlalagið Penny Lane má segja að Björgvin Halldórsson hafi byrjað einhvern glæsilegasta feril sem Íslendingur hefur átt í sögu dægurtónlistar hér á landi.

Björgvin hafði ekki dvalið lengi með þeim félögum í Bendix er hann gerðist framlínumaður hljómsveitarinnar Flowers í stað Jónasar R. Jónssonar. Flowers sprakk þó skömmu síðar árið 1968, í Trúbrots-sprengjunni frægu ásamt Hljómum.

Í kjölfarið stofnaði Björgvin hljómsveitina Ævintýri ásamt þeim Sigurjóni Sighvatssyni og Arnari Sigurbjörnssyni. Og sem söngvari þeirrar sveitar má segja að stórstjörnudraumurinn hafi orðið að veruleika. Hápunktur þess draums var efalaust í Laugardalshöll þegar 4500 manns mættu og völdu hann sem poppstjörnu ársins og Hljómsveitina Ævintýri sem popphljómsveit ársins þann 1. október 1969.

Ævintýri hafði uppi áætlanir um gerð stórrar LP plötu en útgefendur töldu meiri líkur á að sólóplata með söngvaranum myndi líklega vera meira spennandi, sérstaklega eftir poppstjörnukosninguna. Undanfari plötunnar var smáskífa með titillaginu Þó líði ár og öld sem út kom seint á árinu 1969.
LP Platan sjálf vannst hinsvegar hægar og þegar hún kom loks út seinni hluta árs 1970 seldist hún vel. Björgvin átti þó síðar eftir að hljóðrita titillag plötunnar aftur og hefur sú útgáfa fylgt ferlinum síðan og verið talið meðal hans bestu laga.

En Ævintýri var úti og Björgvin í samstarfi við Sigurjón og Arnar stofnaði hljómsveitina Brimkló og gáfu þeir út 5 LP plötur sem allar hafa notið mikilla vinsælda og lög af þeim plötum lifa góðu lífi meðal þjóðarinnar. Næst lá leið hans í raðir hljómsveitarinnar Change, ásamt Stuðmanninum Tómasi Tómassyni, en Change var í þann mund að reyna fyrir sér á erlendum vettvangi og fluttist Björgvin til London þar sem hann dvaldi í u.þ.b. 2 ár en starfaði þó stutt með sveitinni.

Gunnar Þórðarson og Rúnar Júlíusson ákváðu 1973 að endurvekja Hljóma og buðu Björgvini
að vera með. Hann þáði boðið og lék með þeim um tíma sem og vann með þeim eina plötu, Hljómar 74, sem hljóðrituð var í Bandaríkjunum um jólin 1973. En sveitin sem slík náði ekki því flugi sem hún hafði gert á árum áður og platan féll ekki inn í tíðarandann á þessum tíma, en er í dag talin með betri plötum Hljóma.
Þegar Hljómar leystust upp þá fæddist hljómsveitin Ðe lónlí blú bojs uppúr Hljómum sem náði að gera allt vitlaust hvað vinsældir snerti. Sú sveit sendi frá sér hverja stuðplötuna á fætur annarri. Meðan Björgvin dvaldi í London vann hann ásamt Gunnari Þórðarsyni og Tómasi Tómassyni að gerð fyrri vísnaplötunnar Einu sinni var sem kom út 1976 og er enn í dag ein söluhæstu platna íslenskrar útgáfusögu frá upphafi. Sama ár flutti Björgvin heim að áeggjan Rúnars Júlíussonar og var Brimkló endurlífguð og sló í gegn með sinni fyrstu LP plötu. Ári síðar kom önnur vísnaplata þeirra félaga Björgvins og Gunnars út sem hlaut heitið Út um græna grundu. Hlaut sú plata frábærar móttökur.

Árið 1978 sendi Björgvin frá sér sína aðra sólóplötu, Ég syng fyrir þig, sem er ein hans vinsælasta sólóplata á ferlinum enda er þar að finna gullmola á borð við Eina ósk, Skýið, Guð einn það veit og Elskar þú mig á morgun, Ég er að tala um þig, auk titillagsins.

Árið 1979 brá Björgvin sér í leðurjakkann og rokkaði af og til næstu árin á nokkrum plötum með þeim bræðrum Halla og Ladda, undir fána HLH flokksins, við fádæma vinsældir. Þeir sendu frá sér 5 breiðskífur .

Árið 1980 gerði Björgvin plötuna Dagar og nætur í samstarfi við Ragnhildi Gísladóttur. Óhætt er að fullyrða að sú plata var ein vinsælasta plata þess árs þrátt fyrir pönkbyltinguna miklu sem reið yfir landið um líkt leyti. Í dag er þessi en mikið flutt í ljósvakamiðlum eins og svo mörg lög Björgvins.
Sama ár var frumsýnd kvikmyndin Óðal feðranna, þar flutti Björgvin lagið Sönn ást, sem er ein af sígildum perlum dægurlaganna. Fyrir jólin stóð til að Björgvin gerði stóra 12 laga jólaplötu. Til þess vannst þó ekki tími en gefin var út tveggja laga smáskífa, Ný jól. Það liðu nú heil tvö ár áður en aðdáendur Björgvins fengu nýtt sólóefni í hendur en 1982 kom út hans þriðja plata, Á hverju kvöldi, sem margir aðdáendur Björgvins telja eina vanmetnustu plötu hans, enda gæði skífunnar augljós strax við fyrstu hlustun og lög eins og Reyndu, Skýjaglópar og Aðeins sextán sanna.

Hér hefur verið farið yfir smá brot af verkum Björgvins en þegar hér er komið sögu hafði hann sungið að miklum hluta inn á plötur annarra sem og safnplötur, t.d. mátti heyra lög með Björgvini á safnplötu SG hljómplatna Við djúkboxið sem Björgvin framleiddi og út kom 1982.

Árið 1986 sendi hann frá sér nýja sólóplötu sem hét einfaldlega Björgvin. Sú skífa skartar m.a. perlum á borð við Ég lifi í draumi eftir Eyjólf Kristjánsson, en það lag hefur verið fastagestur í útvarpstækjum landsmanna allar götur síðan. Einnig er þar lagið Ástin eftir Valgeir Guðjónsson. Ári síðar kom út fyrsta jólaplatan af fjögurra platna seríu, ef svo má segja, þar sem Björgvin tekur á móti jólagestum, sem allir eru þekktir söngvarar. Á henni mæta til leiks Egill Ólafsson, Jóhann Helgason, Helga Möller, Ellý Vilhjálms og Pálmi Gunnarsson svo nokkrir séu nefndir. Hinar tvær plöturnar voru unnar undir sömu forskrift, Allir fá þá eitthvað fallegt (1989) og Jólagestir 3 (1995), Jólagestir 4 en gestir Björgvins á þessum plötum eru fjölmargir.
Fjölmörg af lögum af þessum plötum eru fastagestir á spilalistum útvarpsstöðva um hver jól. Nægir þar að nefna lög eins og Ef ég nenni, Helga nótt, Þú komst með jólin til mín, Fyrir jól, Svo koma jólin og fjölmörg önnur

Árið 1990 kom út fyrsta plata Sléttuúlfana en með þeirri sveit gaf Björgvin út tvær plötur og kom sú síðari út 1991. Mörg laga þeirrar sveitar náðu miklum vinsældum og eru enn á "playlista" útvarpsstöðvanna.

Árið 1993 gerði Björgvin Gospelplötuna Kom heim, fyrir Samhjálp, sem heldur betur sló í gegn með lögunum um Gullvagninn og lagið Milljón glappaskot sem var álíka smellur og óhætt er að fullyrða að með því hafi Björgvin komið Gospeltónlistinni á kortið hér á landi. Björgvin átti síðar eftir að vinna tvær plötur í svipuðum dúr Hærra til þín (1995) og Alla leið heim (1997). Þessar plötur áttu síðar eftir að verða aðaluppistaðan í safnplötunni Pottþétt Gospel sem Skífan gaf út í Pottþétt seríunni árið 2001 sem undirstrikar gæði þessara platna.

Árið 1995 tók Skífan saman nokkrar perlur Björgvins og gaf út á tvöfaldri safnplötu sem fékk titilinn Þó líði ár og öld í tilefni af 25 ára hljóðritunarafmæli Björgvins. Það árið efndi Björgvin til stórsýningar á eitingahúsinu Broadway sem gekk á 3 ár fyrir fullu húsi. Árið síðar kom svo út önnur safnplata, Núna, en á henni er að finna lög sem Björgvin hafði flutt í undankeppnum Eurovision söngvakeppninnar en hann hafði margoft tekið þátt í þeim keppnum frá því þær hófust hér heima og það ár var Björgvin einmitt fulltrúi Íslands í með lagið Núna. Björgvin hefur einnig tekið þátt í fjölda keppnum á erlendri grund.

Árið 1999 var jólalögum í flutningi Björgvins og félaga safnað saman á tvöfalda plötu er bar heitið Bestu jólalög Björgvins. Ári síðar var hún svo stytt í einfalda plötu sem kallaðist Um jólin. Jólaplötur Björgvins í gengum tíðina eru alltaf mjög vinsælar hjá landanum um hver jól. Ný sólóplata "Eftirlýstur" leit dagsljósið 2001 þar sem Björgvin kom mönnum mjög á óvart með frábærri túlkun sinni á Megasarlögunum Spáðu í mig og Tvær stjörnur, auk lagsins um Lennon (hinn eini sanni Jón), sem er eftir Björgvin sjálfan. Ári síðar eða 2002 kom svo út ballöðusafn Björgvins, Ég tala um þig.

Í árslok 2003 sendi Björgvin frá sér enn eitt meistarastykkið sem hlaut heitið Duet, Þar fær Björgvin, eins og svo oft áður ýmsa valda listamenn í lið með sér en í þetta sinn til að syngja á móti sér og má þar heyra samsöng hans með nöfnum eins og Pál Rósinkranz, Jón Jósep Snæbjörnsson, þekktari sem Jónsi söngvari hljómsveitarinnar Í svörtum fötum, Þá tekur hann dúett með Krumma syni sínum og dóttur sinni Svölu, Birgitta Haukdal syngur einnig með honum í einu laga sem og Sverrir Bergmann og fleiri.
Talsverður fjöldi söngvara þessu til viðbótar syngur dúett þarna með Björgvini. Duet 2 er í farvatninu og má vænta hennar fljótlega

Fyrir jólin 2005 sendi Björgvin frá sér þrefalda safnplötu í vönduðum umbúðum sem innihélt alla texta og myndabók. Plöturnar heita "Ár og Öld..Söngbók Björgvins Halldórssonar 1970 -2005.Þar er að finna 70 þekkt lög Björgvins frá glæstum ferli ásamt 4 nýjum hljóðritunum. Í tilefni af útgáfunni setti Björgvin upp söngskemmtunina "Nína og Geiri..Söngbók Björgvins Halldórssonar í Veitingahúsinu Broadway eins og 10 árum áður, nema núna var verið að halda uppá 35 ára hljómplötuafmæli.

Árið 2006 efndi Björgvin til stórtónleika í Laugardalshöllinni ásamt Sinfóníuhljómsveit ísland og fyllti höllina þrisvar sinnum. Þeir tónleikar komu út á DVD og CD í kjölfarið og fékk stórgóðar við tökur 2007-8-9 hefur Björgvin haldið jólatónleika sína " Jólagestir Björgvins " í höllinni við metaðsókn og eru þessir tónleikar orðnir fastur liður í jólaundirbúningi fjölda landsmanna. Jólatónleikarnir 2008 komu einnig út á DVD og CD og fengu stórgóðar viðtökur

Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru í sólóferli Björgvins því ónefndar eru ýmsar plötur sem Björgvin hefur sungið inn á eða stjórnað en skrifast kannski ekki á hann. Má þar nefna stórglæsilega plötu með lögum eftir Jón frá Hvanná, Töfrablik, plötu Hauks Heiðars og félaga, Með suðrænum blæ, en Björgvin var framleiðandi beggja þessara platna, barnaplöturnar sívinsælu Börn og dagar og Eins og þú ert. Við eigum samleið sem skartar sönglögum Sigfúsar Halldórssonar, Djöflaeyjan sem inniheldur lög úr samnefndri kvikmynd en Björgvin hafði veg og vanda að tónlistarvali þeirrar plötu auk þess að semja titillagið " Þig dreymir kannski engil" og sá um framleiðslu. Einnig hefur Björgvin sungið inn á sólóplötur Gunnars Þórðarsonar, Borgarbrag, Í loftinu og Himinn og jörð, en þar syngur Björgvin lagið Vetrarsól auk titillagsins.

Björgvin hefur ljáð kollegum sínum meira en rödd sína um dagana því fagmennsku hans virðist engin takmörk sett þegar tónlist er annars vegar og sem upptökustjóri og tónlistarstjórnandi hefur Björgvin einnig sannað sig svo um munar. Til vitnis um það má benda á að tveir af okkar stærstu söngvurum á óperusviðinu, þau Kristján Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir hafa fengið Björgvin til að stjórna upptökum og annast framkvæmd við gerð platna sinna. Á plötu Kristjáns var undirleikur í höndum Sinfóníuhljómsveitar Lundúna, The Royal Philharmonic Orchestra. Einnig hefur Björgvin framleitt 3 plötur með Sinfóníuhljómsveit íslands.
Björgvin hefur og haft umsjón og haldið um stjórnvölin við gerð Íslandslaga en þær plötur eru nú orðnar 7 talsins.
Tónleikar Björgvins í Laugardalshöllinni eru nú orðnir 4 talsins og hefur Björgvins fyllt höllina í hvert skipti og allt að þrisvar sinnum fyrir hverja tónleika. Fyrstu tónleikarnir voru með Sinfóníuhljómsveit íslands árið 2006 og voru þeir tónleikar gefnir út á DVD og CD diskum og hafa selst yfir 20.000 einstökum. 2007-8-9 hélt Björgvin sína Jólatónleika við mikinn fögnuð í höllinni og voru tónleikarnir árið 2008 gefnir út á DVD og CD við frábærar móttökur

Rödd Björgvins má heyra á yfir 900 hljóðritum íslenskrar tónlistarsögu, svo sjá má að hér hefur aðeins verið stiklað á stóru. Ekki hefur verið minnst á allar þær sönglagakeppnir sem hann hefur tekið þátt í hérlendis sem og erlendis, né önnur störf hans hvorki sem útvarps-sjónvarps, skemmtana-, eða upptökustjóra, hljómsveitarstjóra né framleiðanda.
Björgvin Halldórsson er fyrst og fremst fagmaður í tónlist sem hefur haldið sínu striki sem slíkur þrátt fyrir allar tónlistarbyltingar og óvæga gagnrýni á ákveðnum tímum ferilsins.
Til marks um fagmennsku hans er það svo að líklega hafa þeir sem hæst hafa gagnrýnt hann nálgast hann meira með tímanum en hann þá.
Björgvin Halldórsson hefur fyrir löngu skipað sér á bekk meðal fremstu manna íslenskrar tónlistarsögu og það sæti mun vera merkt honum um alla framtíð.
© Copyright 2003 PROMO Hönnun: DesignEuropA.com
promo@promo.is