Balzamersveitin Bardukha hefur lengi starfað saman og hafa meðlimir nánast verið þeir sömu frá upphafi. Balzamertónlistin, sem er einkenni hljómsveitarinnar, á rætur sínar að rekja til austur-evrópskrar, arabískrar og persneskrar þjóðlagahefðar auk sígaunatónlistar. Sveitin hefur haldið nokkra tónleika síðustu misserin og komið fram bæði í sjónvarpi og útvarpi. Túlkun meðlima á balzamertónlist vekur jafnan mikla athygli og er óhætt að segja að áheyrendur komi ekki samir út af tónleikum með Bardukha, í jákvæðustu merkingu þeirra orða.
Bardukha er skipuð fiðluleikaranum Hjörleifi Valssyni, harmonikkuleikaranum Ástvaldi Traustasyni, kontrabassaleikaranum Birgi Bragasyni og arabíska handtrommuleikaranum S.G. (Steingrímur Guðmundsson).
HJÖRLEIFUR VALSSON lauk einleikaraprófi frá Tónlistarháskólanum í Ósló árið 1993 en hlaut þá styrk frá tékkneska ríkinu til náms við Prag-konservatóríið. Þar nam hann fiðluleik og kammertónlist í þrjú ár, auk þess að leika með ýmsum kammerhópum og hljómsveitum þar í borg. Hjörleifur lauk Dipl. Mus. gráðu frá Folkwang-Hochschule í Essen sumarið 2000. Á námsárum sínum í mið-Evrópu sótti hann námskeið hjá m.a. Grigorij Zhislin (reglulegir einkatímar í fjögur ár), Truls Mörk, Pierre Amoyal, Sergej
Ástvaldur Traustason píanóleikari er stofnandi og skólastjóri Tónheima. Hann útskrifaðist úr tónlistarskóla F.Í.H. 1988 og brautskráðist úr Berklee College of Music í Boston, Massachusetts árið 1991. Ástvaldur starfaði sem píanókennari hjá Tónskóla Sigursveins, tónlistarskóla F.Í.H. á árunum 1992 – 2000 auk þess sem hann kenndi við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Ástvaldur hefur starfað sem píanóleikari í ýmsum hljómsveitum, m.a. Stórsveit Reykjavíkur, Milljónamæringunum og Sálinni hans Jóns míns auk þess sem hann leikur djass reglulega með hinum ýmsu djassleikurum. Hann leikur einnig á harmonikku með hljómsveitinni Bardukha.
BIRGIR BRAGASON stundaði á árum áður nám við ýmsa tónlistarskóla. Allar götur síðan hefur hann verið virkur í tónlistarlífi landsmanna og leikið með fjölmörgum tónlistarmönnum, innlendum sem erlendum, hérlendis sem erlendis. Greina má bassaleik hans á tugum hljómplatna og hljómdiska, en hann leikur jöfnum höndum á kontrabassa og rafbassa. Birgir hefur spilað í mörgum leiksýningum, samið leikhústónlist og stjórnað tónlistarflutningi í leikhúsi. Birgir leikur nú í söngleiknum Edith Piaf.
Steingrímur Guðmundsson er fæddur 1958 í Harnarfirði. Hann stundaði nám í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar en flutti til Svíþjóðar 1976 til að iðka trommunám hjá Pétri Östlund. Í Svíþjóðst starfaði Steingrímur með ýmsum hljómsveitum meðal annars með KoKo YoYo Band og tónlistar leikhúsinu Fria Teatern. 1982 flutti Steingrímur til Ameríku og gerðist lærisveinn í tablatrommuleik hjá indverska meistaranum Swapan Chauduri í Ali Akbar Kahn í tónlistarskóla hans í San Fransisco. Eftir að Steingrímur kom til íslands hefur hann leikið með fjölmörgum tónlistarmönnum, innlendum sem erlendum, hérlendis sem erlendis, má þar nefna hljómsveitinna Súld, Milljónamæringana, Incredible String Band. Síðastliðið ár kom út geisladiskurinn Dialog sem Steingrímur vann með Sigtryggi Baldurssyni og fékk afar góða dóma í íslenskum fjölmiðlum. Steingrímur er einn af upphaflegum meðlimum Bardukha.
|