Heim promo@promo.is
Böndin PROMO Atburðir Sendu fyrirspurn Póstlistinn
Í svörtum fötum    
* Austfirðingaball ...
Á móti sól
Austurlandið
Bardukha
Bermuda
Björgvin Halldórsso...
BoogieNights
Dalton
Danshljómsveit Frið...
Dísel
DJ Kiddi Bigfoot
DJ Siggi Hlö
Dúkkulísur
Eins og hinir
Fimm á Richter
Geirfuglarnir
Geirmundur
Greifarnir
Helgi Björns
Hrafnar
Hunang
Hvar er Mjallhvít?
Í svörtum fötum
Ímynd
Ína og Hljómsveit
Ingó & Veðurguðirni...
Íslenzka sveitin
Jet black Joe
Karma
Klaufar
Kóngulóarbandið
Land og synir
Logar
Lúdó og Stefán
M-blues project
Mannakorn
Matti Idol og Draug...
Milljónamæringarnir
Mono
Napoleon
Nýdönsk
Óðs Manns Æði
Rokkabillýband Reyk...
Sagaklass
Sálin
Sambandið
Síðasti sjens
Silfur
Sixties
Skítamórall
Skriðjöklar
Sniglabandið
Sólon
Spútnik
SSSól
Stuðmenn
Súellen
Tilþrif
Touch
Úlfarnir
Umsvif
Upplyfting
Vinir Vors & blóma
Von
Þursaflokkurinn
  
Hléið er á enda. Rykið blásið af gíturum, bassastrengir soðnir, kjuðar renndir í hefli, hljómborðunum stungið í samband og lóðin pumpuð sem aldrei fyrr! Í svörtum fötum munu trylla lýðinn á völdum dagsetningum í lok árs 2008 og æða svo trylltir inn í 10 ára afmælisárið 2009 - þar sem von er á nýju efni og frekari útgáfu og innleggi í poppsögu Íslands. Takið fram dansskónna, pússið sólgleraugun, strauið skyrtuna og kaupið karton af hárvaxi - Bestir á balli eru mættir!!!

Upphafið má rekja til síðustu aldar. Vorið 1998 var planið að búa til órafmagnaða hljómsveit og var þá mikið spekúlerað í artistum eins og Sade, Toto, Anne Lennox o.fl.. Brátt fóru núverandi meðlimir að týnast inn, fyrstur kom Áki Sveinsson, síðan Einar Örn Jónsson og í þeirri mynd kom hljómsveitin einu sinni fram undir nafninu Gullfiskarnir. Næst var skipt um gítarleikara og var félagsmiðstöðvafrömuðurinn Hrafnkell Pálmarsson kallaður til. Þegar söngkonan Þóra varð að hætta vegna barnsburðar haustið 1998 var 21 árs galgopi að nafni Jón Jósep fenginn í prufu. Hann heillaði alla með sínu lífsglaða viðmóti og kraftmiklum söng og var því ráðinn í bandið.

Var nú æft af miklu kappi og ekki er lokum fyrir það skotið að svört Soul-tónlist í anda James Brown, Marvin Gaye, Sam & Dave og Aretha Franklin hafi átt upp á pallborðið. Soul og stuðbandið Í svörtum fötum var orðið að veruleika og hélt sína fyrstu tónleika á Kaffi Reykjavík 1. janúar 1999.

Klæðnaðurinn á þessum tíma var einfaldur; hvít skyrta, svart bindi, vel bónaðir lakkskór og svört jakkaföt frá Sævari Karli. Nafnið er komið frá Jónsa sem hafði alltaf dreymt um að búa til Fönkband undir nafninu Fönk í svörtum fötum. En þar sem MIB spilaði lítið fönk þá var "... í svörtum fötum" látið duga og var þá hugmyndin að geta skeytt hverju sem er fyrir framan nafnið.

Um vorið 1999 tók Kári Árnason við sem trymbill. Hann trommaði í tæpt ár en yfirgaf MIB í janúar 2000. Þorvaldur Þór Þorvaldsson hljóp í skarðið með stuttum fyrirvara og óhætt að segja að hann hafi haft mikil áhrif á velgengni hljómsveitarinnar.

Árið 2000 var mjög gott fyrir Í svörtum fötum. Hvar sem bandið lék fékk það frábærar undirtektir og hróður hljómsveitarinnar fór stöðugt vaxandi. Því var ákveðið í desember það ár að gefa út plötuna Verkefni 1. Upptökur, hljóðblöndun og framleiðsla tók samtals 10 daga og má kannski segja að gæðin hafi verið í samræmi við það.

Lagið Nakinn kom út í apríl 2001 og var fyrsta lag hljómsveitarinnar sem náði almennri hylli enda var vel vandað til verksins með dyggri aðstoð Haffa í SSSól. Lagið náði 2. sæti á Íslenska listanum sem er harla gott í fyrsta skoti.

Í september 2001 urðu kaflaskil í sögu hljómsveitarinnar þegar skrifað var undir samning við Skífuna upp á 4 plötur.

Í desember 2001 sendi hljómsveitin frá sér sitt fyrsta jólalag sem nefnist "Jólin eru að koma". Íþróttasamband fatlaðra gaf lagið út á samnefndri plötu. Við lagið var gert glæsilegt myndband og vonandi hefur lagið fest sig í sessi sem ómissandi þáttur í jólaundirbúningi landsmanna.

Árið 2002 festi í Svörtum fötum sig í sessi sem ein vinsælasta hljómsveit landsins. Febrúar og mars mánuðir það ár verða seint slegnir út því á þessum 59 dögum kom hljómsveitin 42 sinnum fram, auk þess að fara saman eina utanlandsferð. Hljómsveitin fékk viðurkenningu sem "Bestir á balli" á Hlustendaverðlaunahátíð Fm 957 og um sumarið hófust upptökur á fyrstu alvöru plötu hljómsveitarinnar sem fékk nafnið "Í svörtum fötum".

Síðasta pússlið í núverandi heimsmynd Svartra fata var Hvergerski trommarinn Páll Sveinsson sem gekk til liðs við MIB í ágúst 2002. Hann kom inn í gerð hljómplötunnar og lék á sínu fyrsta giggi fyrir 30.000 áhorfendur á Menningarnótt. Dag sem dimma nátt sat í byrjun desember á toppi beggja vinsældalista landsins, á Steríó og Fm 957. Platan seldist í þúsundum eintaka og komst í gull - fyrsta gullplata MIB var í höfn!

2003 héldu ÍSF limir áfram af fullum krafti og kom út hljómplatan Tengsl fyrir jól. Hlaut platan lof gagnrýnenda þar sem metnaðarfull poppframleiðsla hlaut jákvæða rýni. Lög sem náðu vinsældum af Tengsl voru m.a. Engin orð, Ekkert að fela,Þrá og Þú sem ert mér allt. Tengsl seldist í þúsundum eintaka og fór í gull.

Árið 2004 var ár ÍSF, nær öll verðlaun á hlustendaverðlaunum FM957 voru í húsi og spilamennska út um allt land. Þriðja hljómplata Svartra fata, Meðan ég sef, fór í gull - þrjár gullplötur á þremur árum! Næstu ár tók við gengdarlaus spilamennska í hverju plássinu af fætur öðru, hérlendis sem erlendis.

Árið 2005 gáfu strákarnir í MIB Hagkaupum og verslunarmiðstöðvum landsins frí en leyfðu Jónsa að sinna eigin hugarefnum en hann gaf út sólóplötu fyrir jólin. Í svörtum fötum léku fyrir sinn stærsta áhorfendahóp á menningarnótt 2005 en þeir voru eitt af aðalnúmerunum á tónleikum á Hafnarbakkanum í RVK - léku fyrir um 100.000 manns! Ári síðar kom svo út fjórða breiðskífa pilta - Orð. Sú plata naut talsverðra vinsælda þó ekki færi hún í gull.

Komið var að tímamótum áramótin 2006-2007 en þá ákvað hljómsveitin að fara í hlé frá opinberri spilamennsku enda varla verið fríhelgi frá árinu 1999. Ekki tókst drengjunum þó að halda sig alveg til hlés þar sem bæði árin 2007 og 2008 voru þeir eitt af aðalnúmerum Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum.
© Copyright 2003 PROMO Hönnun: DesignEuropA.com
promo@promo.is