Saga hljómsveitarinnar Á móti sól
Hljómsveitina Á móti sól skipa þeir Guðmundur Magni Ásgeirsson – söngvari, Sævar Helgason – gítarleikari, Heimir Eyvindarson – hljómborðsleikari, Þórir Gunnarsson – bassaleikari og Stefán Ingimar Þórhallsson – trommari. Hljómsveitin var stofnuð haustið 1995 og Þórir og Heimir eru þeir einu sem eftir eru af upprunalegum meðlimum. Stefán gekk til liðs við hljómsveitina vorið 1997, Sævar vorið 1998 og púsluspilið var loks fullgert þegar Magni bættist í hópinn haustið 1999.
Hljómsveitin hefur átt miklum vinsældum að fagna á íslenskum ballmarkaði og m.a verið í “lykilhlutverki” á vinsælustu útihátiðum landsins, t.a.m. 6 sinnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Lög ÁMS hafa mörg náð miklum vinsældum s.s Djöfull er ég flottur, Á þig, Stelpur, Sæt, Vertu hjá mér, Þegar jólin koma, Spenntur, Afmæli, Austur-Þýzk, Ég er til, Eitthvað er í loftinu, Keyrðu mig heim, Drottningar, Allt, Einveran og núna síðast LANGT FRAM Á NÓTT.
Hljómsveitin hefur gefið út 6 plötur, þar af 4 með Magna innanborðs. Sú fyrsta bar hið undarlega nafn GUMPURINN og kom út 1997. Fyrsti “singull” þeirrar plötu var endurgerð á laginu Reykjavíkurborg sem Þú og Ég höfðu gert ódauðlegt mörgum árum áður. Þessi útgáfa fékk svolitla spilun í útvarpi á vormánuðum 1997, en um sumarið kom fyrsti alvöru smellurinn, Djöfull er ég flottur. Þar með fór boltinn að rúlla. Árið 1999 kom önnur plata sveitarinnar, en hún heitir einmitt 1999. Skemmtilegt;-) Í millitíðinni höfðu komið lög á safnplötum, m.a. Á Þig sem var á SVONA ER SUMARIÐ 1998. Á Þig var gríðarlega vinsælt sumarið 1998 og náði svo flugi aftur í órafmagnaðri útgáfu haustið 1999, en þá var Magni nýkominn í bandið, og lagið náði síðan þriðja “vinsældaskeiðinu” vorið 2002 þegar fyrsti ELDHÚSPARTÝ diskurinn kom út. Sannarlega góð nýting á einu litlu lagi. En semsagt breiðskífan 1999 fékk mjög góðar viðtökur hjá gagnrýnendum, en seldist nú ekki í neinum bílförmum, nokkur lög af plötunni náðu þó talsverðri útvarpsspilun, s.s. Sæt og Viagra. Þrátt fyrir að sala plötunnar gengi ekki sem skyldi gekk hljómsveitinni vel á ballmarkaðnum, sem fyrr. Um sumarið tilkynnti þáverandi söngvari, Björgvin Hreiðarsson, að hann ætlaði að hætta um haustið. Þá þefuðu strákarnir Magna uppi austur á Egilsstöðum, þar sem hann starfaði við brauðagerð og kökubakstur, splæstu á hann flugfari í bæinn þar sem var tekin smá prufa og má segja að sveitastrákurinn hafi verið ráðinn á staðnum, enda stóð hann sig prýðilega;-) Söngvaraskiptin urðu í September 1999 og Magni smellpassaði svo inní bandið að það þurfti ekki að gera neitt einasta hlé á spilamennsku! Síðasta ball Björgvins var skólaball á Astró á miðvikudegi og fyrsta ball Magna var réttaball á Hellu laugardaginn þar á eftir!
Fyrsta lagið sem Magni tók upp í hljóðveri með bandinu var jólalagið, Þegar jólin koma, sem varð mjög vinsælt fyrir jólin 1999. Árið 2000 var hljómsveitin ekki með í plötuútgáfu en lagið Vertu hjá mér var á SVONA ER SUMARIÐ. Vorið 2001 frumflutti hljómsveitin lagið -Spenntur á Hlustendaverðlaunum FM 957 í Borgarleikhúsinu. Spenntur varð gríðarlega vinsælt, smellti sér á topp íslenska listans t.a.m. og í kjölfarið var undirritaður plötusamningur við Skífuna. Í September sama ár kom út 3. breiðskífa hljómsveitarinnar, og sú fyrsta með Magna innanborðs. Hún heitir ÁMS og fékk frábæra dóma hjá nær öllum gagnrýnendum nema gítarleikaranum í Fákum frá Grindavík, sem gagnrýndi plötuna fyrir blað sem nú er farið á hausinn.
Sumarið 2001 var hljómsveitin í Bylgjulestinni og sjaldan hafði verið jafn mikið að gera í spilamennsku. Árið 2002 kom engin plata frá drengjunum en lagið Keyrðu mig heim var á SVONA ER SUMARIÐ, auk þess sem hljómsveitin átti 2 lög á Eldhúspartý – diskinum , sem áður er minnst á.
Árið 2003 leit svo 4. breiðskífa hljómsveitarinnar dagsins ljós. Sú ber nafnið FIÐRILDI og gekk mjög vel í landann - enda inniheldur hún nokkra af vinsælustu lögum hljómsveitarinnar hingað til - Drottningar, Allt og Einveran til að nefna nokkur.
Áms byrjaði 2004 með því að gefa út eitt lag - Langt fram á nótt - en síðan var stefnunni breytt aðeins þegar upp kom sú hugmynd að gefa út svonefnda cover-plötu með uppáhalds-íslensku lögum sveitarinnar. Afrakstur þess starfs er fyrsta gullplata bandsins - 12 íslensk topplög sem kom út fyrir jólin 2004 og seldist í bílförmum. Seinni hluti þessa verkefnis - Hin 12 topplögin - kom síðan nokkrum mánuðum síðar og vakti ekki minni lukku...
|