Heim promo@promo.is
Böndin PROMO Atburðir Sendu fyrirspurn Póstlistinn
Dagatalið
21.08.2010   
MAGNI & ROKKABILLÝBANDIÐ Þórshöfn 21. ágúst




Þeir félagar Guðmundur Vilhjálmsson og Þórir Jónsson blása til Haustfagnaðar annað árið í röð og er haustinu fagnað snemma þetta árið eða 21 ágúst sem er síðasta helgin fyrir byrjun framhaldskóla og markar oft sú helgi sumarlok í hugum unga fólksins.

Rokkabillyband Reykjavíkur og Magni Ásgeirsson munu leika fyrir dansi af sinni alkunnu snilld sem heillaði Þórshafnarbúa og nærsveitarmenn upp úr skónum í fyrra.
Magna þarf vart að kynna fyrir landsmönnum og væri að æra óstöðugan þar sem hvert mannsbarn í landinu ásamt milljónum sjóvarpsáhorfenda út um allan heim fylgdust með frammistöðu hans í Rock Star þáttunum þar sem drengurinn fór hreinlega á kostum.

Rokkabillýbandið sú gamalreynda sveit kom saman á þarsíðasta ári eftir langt hlé og sendi frá sér plötuna REYKJAVÍK við góðar undirtektir. Fyrir sveitnni fer sem fyrr söng- og gítarleikarinn Tómas Tómasson, Birgir Baldursson trommuleikari ásamt tanbúrinusnillingnum Milla í pöntun sem mun heiðra Þórshafnarbúa með nærveru sinni. Og síðast en ekki síst bassagúrúið Birgir Kárason sem leikið hefur með sveitinni undanfarið við hrikalega góðan orðstír.

Hljóðsnillingurinn Kiddi Halldórs mun mæta á svæðið með hrikalega stórt og öflugt hljóðkerfi sem tryggir besta mögulega hljómburð í Þórsveri. Einnig ætlar hann að hita upp fyrir Rokkabillybandið og mun hefja leik strax klukkan 23.30, en húsið opnar klukkan 23.00.
Barinn verður opinn allt kvöldið og aldurstakmark er 18 ár

Fortónleikar fyrir unga sem aldna eru áætlaðir kl 18.00 Nánar auglýst síðar.


Rokkabillýband Reykjavíkur sú gamalreynda sveit hefur nú vaknað til lífsins og kveður sér hljóðs með nýrri plötu. 




18.09 Austfirðinga...
© Copyright 2003 PROMO Hönnun: DesignEuropA.com
promo@promo.is